Hjálpum börnum heimsins
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi- Skjálfandi styður við starf Völsungs
20. febrúar 2012

Skjálfandi styður við starf Völsungs

 
Í máli forseta Skjálfanda við afhendingu verðlauna og viðurkenninga í gær kom m.a. fram að Kiwanis klúbburinn hefur náð að styðja myndarlega við ýmis verkefni á þessu starfsári.

Við þetta tilefni afhenti Kiwanisklúbburinn Skjálfandi Fimleikadeild Völsungs kr. 75.000,- í styrk vegna ferðar deildarinnar næsta sumar í æfingarbúðir í Danmörku.

Þá undirrituðu formaður Völsungs, Guðrún Kristinsdóttir og forseti Skjálfanda, Egill Olgeirsson, samning er kveður á um að Kiwanisklúbburinn Skjálfandi verði aðalstyrktaraðili „Kiwanismótsins á Húsavík í knattspyrnu yngstu iðkenda“ sem haldið verður árlega í lok ágúst fyrir börn í 6. og 7. flokki . Samningurinn gildir a.m.k. næstu 5 ár og er heildarstyrkurinn að lágmarki ein milljón á tímabilinu.
 
Samningurinn tryggir til frambúðar að mótið verður haldið og verði áfram einn af föstum liðum í knattspyrnunni hjá Völsungi.
 
Egill og Guðrún skrifa undir samstarfssamninginn. Mynd: Halli/Sævar
 
EgO/gj
 

Til baka