
Íþróttamaður Húsavíkur 2011
Í allt voru veittar 18 viðurkenningar til íþróttafólks í tíu íþróttagreinum auk sérstakra verðlauna í formi ferðastyrks frá Kiwanisklúbbnum til eftirtalda einstaklinga sem urðu í þrem efstu sætum í vali á Íþróttamanni Húsavíkur 2011.
Í 3.sæti varð Sigurður Unnar Hauksson, skotíþróttamaður
Í 2.sæti varð, Bjarki Þór Jónasson, knattspyrnumaður
og Íþróttamaður Húsavíkur 2011 varð Hafþór Mar Aðalgeirsson, knattspyrnumaður í Völsungi.

| Knattspyrna | 16 ára og yngri | Bjarki Þór Jónasson. |
| Knattspyrna | 17 ára og eldri | Hafþór Mar Aðalgeirsson |
| Handknattleikur | 16 ára og yngri | Heimir Pálsson |
| Handknattleikur | 17 ára og eldri | Alexander G Jónasson |
| Frjálsíþróttir | 16 ára og yngri | Brynjar Örn Arnarsson |
| Frjálsíþróttir | 17 ára og eldri | Selmdís Þráinsdóttir |
| Skíði | 16 ára og yngri | Fannar R Þorláksson |
| Skíði | 17 ára og eldri | Kristófer R Þorláksson |
| Sund | 16 ára og yngri | Valdís Jósefsdóttir |
| Fimleikar | 16 ára og yngri | Huld Grímsdóttir |
| Fimleikar | 17 ára og eldri | Jónína Rún Agnarsdóttir |
| Boccia | 16 ára og yngri | Lena Kristín Hermannsdóttir |
| Boccia | 17 ára og eldri | Kristbjörn Óskarsson |
| Golf | 16 ára og yngri | Reynir Örn Hannesson |
| Golf | 17 ára og eldri | Birna Dögg Magnúsdóttir |
| Hestaíþróttir | 16 ára og yngri | Dagný Anna Ragnarsd. |
| Hestaíþróttir | 17 ára og eldri | Einar Víðir Einarsson |
| Skotíþróttir | 17 ára og eldri | Sigurður Unnar Hauksson |
Hafþór Mar Aðalgeirsson hefur náð þeim árangri að vera valinn besti knattspyrnur maður ársins 2011 á Húsavík.
Hafþór er vel að tilnefningu knattspyrnumanns ársins 17 ára og eldri 2011”
Hafþór Mar Aðalgeirsson valinn „Íþróttamaður Húsavíkur 2011” fyrir frábæran árangur á knattspyrnuvellinum bæði með meistaraflokki Völsungs og með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.
Hafþór Mar „Íþróttamaður Húsavíkur 2011” hefur sýnt og sannað að hann á þennan heiður fyllilega skilið og er æsku- og íþróttafólki þessa lands til fyrirmyndar, og verðugur fulltúi Húsvískrar æsku og íþróttamanna sem hefur borið hróður íþróttar sinnar víða bæði hér innanlands með Völsungi og erlendis með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.
2. sæti í vali á íþróttamaður Húsavíkur 2011.
Besti knattspyrnumaður ársins 2011 á Húsavík 16 ára og yngri
Bjarki Þór Jónasson
Bjarki sem aðeins var 16 ára á liðnu ári, hefur æft og spilað með öllum yngri flokkum Völsungs. Hann æfði mjög vel í byrjun árs þó hann ætti við meiðsli að stríða sem honum tókst svo að vinna bug á þegar leið á vorið.
Hann var valinn í úrtökuhóp U-16 ára karlaliðs Íslands og endaði með því að vera valinn í lið Íslands 2 sem tók þátt í Norðulandamótinu sl. sumar, en það var að þessu sinni haldið hér á landi og fóru leikirnir fram hér norðanlands.
Bjarki spilaði meðal annars í hjarta varnarinnar í liði Íslands 2 hér á Húsavíkurvelli og náði einnig að skora eitt mark fyrir lið sitt sem hafnaði í fjórða sæti á mótinu aðeins hársbreidd frá því að leika til úrslita við lið Íslands 1, en lið Íslands 1 stóð svo uppi sem sigurvegari mótsins eftir sigur á Dönum.
Bjarki lék með 3.fl. Völsungs og fór oft mikinn á vellinum jafnt sem miðvörður eða miðvallarleikmaður og var það mál manna í „brekkunni“ að þarna væri mikill „refur“ á ferð og má umbúðalaust kvitta undir það.
Um miðbik sumars fór Bjarki að banka nokkuð þungt á dyr meistaraflokks Völsungs. Þessi högg þyngdust er leið á seinni umferð ísl.mótsins og endaði svo með því að dyrnar gáfu sig.
Bjarki er því vel að þessari viðurkenningu kominn.
Besti skotmaður ársins 2011 á Húsavík 17 ára og eldri
Sigurður Unnar Hauksson
Skotfélag Húsavíkur tilnefnir Sigurð Unnar Hauksson sem skotíþróttamann Húsavíkur. Sigurður náði frábærum árangri á árinu og ber þar helst að nefna þegar hann varði Íslandsmeistaratitil sinn í unglingaflokki með glæsilegum árangri þegar hann skaut 100 af 125 dúfum. Verður það að teljast eftirtektarvert skor þar sem Sigurður hefur aðeins stundað skotfimi í 2 ár.
Lagði hann þá meðal annars fyrrum fjórfaldan Íslandsmeistara.
Þá varð Sigurður einnig bikarmeistari unglinga á árinu.
Á innanfélagsmótum stóð Sigurður sig einnig mjög vel og endaði á verðlaunapalli á öllum mótum sem hann tók þátt í. Þessum árangri má meðal annars þakka að Sigurður hefur verið undir handleiðslu eins af landsliðsmönnum Íslands sem kom sérstaklega til Húsavíkur til að þjálfa hann.
Þá hefur Sigurður einnig farið þó nokkrar ferðir suður til æfinga, kom það til út af eftirtektarverðum árangri hans árið 2010. Það má með sanni segja að þessar æfingar hafi skilað sér eins og sjá má á hans árangri nú á árinu.
Sigurður hefur mikinn metnað og hefur lagt mikið á sig til að ná þessum árangri og er hann góð fyrirmynd fyrir þá sem vilja stunda og ná árangri í skotíþróttum.
Sigurður er efnilegur skotmaður þó ungur sé aðeins 17 ára og á eftir að ná langt í íþróttinni haldi hann áfram á þessari braut.


