Hjálpum börnum heimsins
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi- Hvatningabikar ÍF 2011
19. febrúar 2012

Hvatningabikar ÍF 2011

 
Við mótslok Bocciamótsins á Húsavík var afhentur „Hvatningabikar ÍF“ fyrir árið 2011.

Bikarinn er veittur árlega þeim einstaklingi sem að mati stjórnar Bocciadeildar og þjálfara sýnir bestu ástundun og mestu framfarir. 

Bikarinn er farandbikar gefinn af Íþróttasambandi fatlaðra og geymir handhafi bikarsins hann milli útnefninga.
 
 
Það var ung bocciakona, Bryndís Benediktsdóttir frá Þverá í Öxarfirði sem hlaut bikarinn að þessu sinni.
 
Bryndís er ein af yngstu þáttakendum í starfi  Bocciadeildarinnar og er að stíga sín fyrstu skref á mótum. Hún stundað æfingar af miklum áhuga og prúðmennsku og lætur sig sjaldan vanta á æfingar eða annað í starfi deildarinnar.
 
Hún er þegar að sýna góðar  framfarir í íþrótt sinni og að öðlast mikilvæga reynslu með þátttöku á sínum fyrstu mótum eins og Húsavíkurmótinu og Norðurlandsmóti hér á Húsavík s.l. haust.
 
Við væntum góðs af henni í framtíðinni bæði í félagsstarfinu og í keppni.

„Bryndís er  vel að þessari viðurkenningu komin og er góður handhafi “Hvatningabikars  ÍF.“
 
 
 
 
 
 
 
 
Myndir: Halli Sig/Sævar
EgO

Til baka