Í dag, sunnudaginn 19. febrúar, stóð Bocciadeild Völsungs og Kiwanisklúbburinn Skjálfandi fyrir uppákomu í Íþróttahöllinni, sem orðið er að árlegum viðburði.
Það er „Opna Húsavíkurmótið í Boccia“ og Kiwanismenn veita Húsvísku íþróttafólki viðurkenningar fyrir afrakstur liðins árs og lýst er kjöri „Íþróttamanns Húsavíkur 2011“.
Þetta var í 16. skipti sem Kiwanisklúbburinn heiðrar húsvískt íþróttafólk með þessum hætti, og 23. bocciamótið sem Boccadeild ÍFV og Skjálfandi halda frá upphafi eða frá stofnun Bocciadeildarinnar árið 1990.
Opna Húsavíkurmótið í Boccia er orðinn fastur liður í starfi Boccideildar Völsungs með góðum stuðningi Kiwanisklúbbsins, sem annast alla dómgæslu, merkingu valla, og kemur að öllum undirbúningi mótsins. Mótinu stýrðu Bragi Sigurðsson og Kristín Magnúsdóttir úr stjórn Bocciadeildar.
Mótið tókst í alla staði afar vel, met þátttaka eða í allt mættu til leiks 48 sveitir sem sýnir enn einu sinni að bæjarbúar og fyrirtæki eru tilbúin að styðja við bakið á Bocciadeildinni með þátttöku, en þetta er fjáröflun fyrir deildina í formi firmakeppni.
Úrslit:
1. sæti Sveit frá Trésmiðjan Rein ehf, Jóna Rún og Sigmar Stefáns
2. sæti Sveit frá Norðurþingi, Bocciakapparnir, Kristbjörn og Guðbjartur
3. sæti Sveitin, Systkinin frá Lyngbrekku, Lena Kristín og Jón Aðalsteinn
Húsavíkurmeistararnir í Boccia 2012, Trésmiðjan Rein ehf hlutu að launum glæsilegan farandbikar sem gefin var af Norðlenska ehf og var nú keppt um í fyrsta sinn.
Þá voru veitt sérstök verðlaun þeim fyrirtækjum sem voru „í flottasta búningunum“, „með flestu liðin“, „yngstu og elstu keppendurna“ og það lið sem lengst væri að komið, en það var pólskt lið frá Norðlenska.
Mótið var afar skemmtilegt og tókst í alla staði mjög vel, mikil stemming og spenna og þurfti oft bráðabana til að útkljá leiki.
Verðlaun voru glæsileg, en þau voru gjafir frá eftirtöldum styrktaraðilum: Landsbankinn, Íslandsbanki, Háriðjan, Lyfja, Víkurraf, Sparisjóðurinn og Innex.
Glæsilegt mót með um 100 keppendur og gestir í iþróttahöllinni þegar mest var nærri 200, frábær og skemmtilegur dagur.
Fjallað verður um tilnefningar á íþróttamanni ársins og fleira í annarri frétt.
Segja má að dagurinn allur, Húsavikurmótið í Boccia, og kjör „Íþróttamanns Húsavíkur 2011”, svo og athöfnin öll hafi tekist vel. Verið hátíðleg, vel sótt af bæjarbúum, og Bocciadeildinni og Kiwanisklúbbnum til sóma.
Sigmar og Jóna Rún frá Trésmiðjunni Rein
Bocciakapparnir frá Norðurþingi, Guðbjartur og Kristbjörn
Systkinin frá Lyngbrekku, Lena Kristín og Jón Aðalsteinn
Myndir: Halli Sig
Uppfært 20.02. Öll úrslit frá mótinu eru hér EgO