Hjálpum börnum heimsins
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi- Frá félagsmálafundi og fleiru
22. janúar 2012

Frá félagsmálafundi og fleiru

 
Eftir annasaman tíma hjá Skjálfanda félögum í kringum áramót og þrettán, færðist starfið í rólegri gír.

En kannski samt bara um einn gír því strax í vikunni eftir þrettándann voru haldnir stjórnar- og nefndarfundir þar sem farið var yfir ýmis mál, gengið frá áramótaverkefnum, unnið að framgangi viðfangsefna og starfið framundan skipulagt.
 
Næsta stóra verkefni klúbbsins er árlegt Húsavíkurmót í boccia ásamt veitingu viðurkenninga til íþróttafólks, sem verður 19. Febrúar. Undirbúningur er í fullum gangi og er í öruggum höndum mikilla reynslubolta úr klúbbnum í samstarfi við Bocciadeild Völsungs.
 
Í kvöld var haldinn félagsmálafundur hjá klúbbnum sem var nokkuð hefðbundinn á þessum tímapunkti, m.a. afgreiddar fundargerðir og farið yfir vinnuyfirlit síðustu vikna og skýrslu fyrir desember. „Innra starf klúbbsins er mjög gott og fyrir það er ég mjög þakklátur“ sagði forseti vor meðal annars þegar farið var yfir samantektina. Virkni og þátttaka félaganna mjög góð og framlög í vinnustundum mikil. Á þessu starfsári, sem hófst 1. október, hefur Skjálfandi afhent styrki að upphæð um 3,3 milljónir sem sýnir hve öflugt starf er í kringum styrktarsjóð klúbbsins.
 
Þetta væri ekki hægt nema meðal annars fyrir góðar viðtökur samfélagsins við flugeldasölu klúbbsins sem er helsta tekjuleið styrktarsjóðs. Flugeldasalan gekk mjög vel núna sem er grunnur að áframhaldandi góðu og mikilvægu starfi styrktarsjóðs Skjálfanda á þessu ári. Klúbburinn þakkar kærlega fyrir sig.
 
Á þessum fundi var ákveðið að stefna síðar í vetur á upprifjun og fræðslu á ýmsu sem snertir skipulag funda, fundasköp, verkefnastjórnun og gildi félagsstarfs. Og efna ennfremur til æfinga í ræðumennsku. Þá afgreiddi fundurinn tvær tillögur vegna svæðisráðsfundar sem haldinn verður um næstu helgi.
 
Hér hefur einungis verið stiklað á stóru því ýmislegt fleira var rætt á þessum ágæta fundi í Skjálfanda.
 
Myndin var tekin við Húsavíkurhöfn í kvöld.
gj


 

Til baka