06. janúar 2012
Í dag er þrettándi dagur jóla og að venju kvöddu Húsvíkingar jólin með Þrettándagleði á uppfyllingunni í suðurfjörunni.
Þangað leiddu álfakóngur- og drottning, ásamt furðuverum ýmsum, blysför bæjarbúa en lagt var upp frá íþróttahöllinni í rigningarsudda.
Við brennuna var söngur og gleði, um dagskránna sáu ungar knattspyrnukonur úr Völsungi og tóku þær lagið við undirleik Guðna Bragasonar.
Þrettándagleðinni lauk með flugeldasýningu Kiwanisklúbbsins Skjálfanda sem var glæsileg að venju.
Hér kemur hersingin niður Búðarárgilið.
Lagið var tekið við brennuna.
Kiwanismenn sáu um flugeldasýningu í lokin.
Til baka